26desember

Áramótin

jæja fyrst að mín síða er ónýt langar mig að koma með góða spurningu fyrir ykkur stelpur

Nasa eða Brodway um áramótin
Sálin á brodway og 90's ball á Nasa. ?

Ég er allavega vel heit fyrir 90's balli þar sem 90's tónlist er æðisleg!!!
EN kommentið herna stelpur þvi það er best að panta miða sem fyrst því eg hata raðir og vesen og þið líklega líka ;)
26. desember 2006 klukkan 06:50
klámhundar
3 athugasemdir
23nóvember

ţ.e. ekkert merkilegt sleppiđ ţví bara ađđ lesa etta

Jæja langaði rosalega til að henda eikkerju hérna inn þar sem það er allt dautt hérna...
vona samt að eikker lesi etta...


Ég samt veit ekkert hvað ég ætti að skrifa nema hvenær er næsti saumó.... :D

og heima hjá hverjum...

hey eruði ekki með nokkur orð úr borat sem þið getið sett í comment þar sem hún er sjúúúúklega funny

-vveery nice
-víví vóvó
-im not in love with you any more pamela.....................
not
-my naamee Borat
-what do i put that(shit)

sorry varð bara að setja þetta þarna þetta er bara svo fyndið.

En já endilega komið með blogg....

og já það er til betriblanda!!!!









hmm og nú eru allir hvaða betriblanda er það


www.betriblandan.bloggar.is

Kossgeggjað nett
BMT
Brynja Magnúsdóttir Töff

p.s. tókuð þið eftir öfugusálfræðinni í hausnum ánægð með þad

23. nóvember 2006 klukkan 23:51
klámhundar
4 athugasemdir
07nóvember

Hola amigos

Halló...vildi bara láta vita að ég ætla að fara að blogga á blog.central.is/aspen núna. Var að spá í blog.central.is/aspas en ákvað að gera Hildi ekki þann greiða ;)

Ég kem til með að blogga þar sem fyrst...og bæta inn einhverju drasli.

07. nóvember 2006 klukkan 19:20
klámhundar
2 athugasemdir
01nóvember

Update

Halló halló...tilkynningin hennar Svanhvítar um blog.central.is/svanhvit88 er búin að standa í alltof langan tíma hérna...vil endilega hvetja fólk til að kíkja á þá síðu...Svanhvít fær alltof litla athygli fyrir hörkusíðu ;)

En ég ætla allavega að blogga um eitthvað annað... þótt ég viti ekki alveg hvað.

Ég er ekki búin að vera að gera neitt merkilegt uppá síðkastið, var veik í alveg viku með sjúkan hita og tívolí. Meira að segja læknirinn minn varð eitthvað vandræðalegur bara og sagði no comment. Hann vildi eiginlega bara losna við mig og síðan fá mig til að mæta einhvert annað í blóðprufur ef ég mundi ekki batna....ég veit ekki hvort ég eigi að taka því sem svo að honum hafi verið sama og ég hafi ekki neitt að óttast, eða hvort að ég sé með afríska svefnveiru eða e-ð og hann hafi viljað mig eins langt frá sér og mögulegt væri.

Allavega, ég er góð núna en það er aldrei að vita nema ég fari að sýna furðuleg einkenni á næstunni. Pottþétt.

Allir kennararnir mínir eru farnir að halda að ég sé haldin eitthverju krónísku og samnemendur byrjaðir að horfa á mig með 'Hver ert þú?' attitudi þegar ég loksins mæti. Æi ég er hvort eð er aðeins á undan í nami, ég má alveg við því ef ég fell svona einu sinni.

En allavega...ég er að fara í ökutíma á fimmtudaginn...drivers beware ég verð komin aftur á göturnar á næstunni, Siggi á eftir að myrða mig þannig að ef þið saknið mín um helgina verð ég í skottinu á ökukennslubílnum hans. Hann er ekki aðdáandi.

Gömlun mín eru síðan að fara til Róm í Nóvember, ég man ekki alveg hvenær, en þau fara allavega yfir helgi, þannig að ég ætla að fá ykkur allar stelpurnar í mat og skrall. Takið allar helgar í Nóv. frá, bara til vonar og vara.

Síðan er ég að fara að flytja fyrirlestur í næstu viku um box. Ég. Um box. Kennarinn minn kom til mín alveg; 'já þú varst ekki í síðustu viku'...ég alveg, "nei ég var veik". Hún: "Já ok, veldu þér íþrótt sem þú stundar eða hefur áhuga á og gerðu fyrirlestur." Ég vil undirstrika það að konan ætlaðist til þess að Ösp Gunnarsdóttir veldi sér íþrótt sem hún stundaði eða hefði áhuga á.

Fyrir þá sem þekkja mig ekkert þá takmarkast íþróttaáhuginn minn við heitan pott og mögulega línuskauta. Það var allavega búið að taka allar góðu íþróttirnar sem allir geta skrifað um; Fótbolti, Karfa, Tennis, Blak....etc.... Þannig að ég, í einhverju skyndibrjálæði valdi mér box. Kemur þarna eitthver trukkalesba og flytur harðkjarna box fyrirlestur....sjeiser mér verður útskúfað félagslega úr enskutímum.

En það er bara gott mál, gaman að krydda þetta aðeins og breyta áliti fólks á manni :p

Ösp Út.
01. nóvember 2006 klukkan 22:15
klámhundar
6 athugasemdir
17október

Auglýsing

blog.central.is/svanhvit88

bara svona ef þetta hefur farið framhja einhverjum


kv

svanhvít :)

17. október 2006 klukkan 21:24
klámhundar
1 athugasemd
13október

kveđja

Ég vildi bara láta fólk vita að ef það nær ekki í mig þá er það vegna þess að ég var að fá sendinguna mína frá amazon með geggjað mikið af skemmtilegu dvd.

Síðan er ég hætt að blogga á þessa síðu....ég nenni því bara ekki lengur, þessi síða er hvort eð er látin fyrir löngu og það er ómannúðlegt að halda henni tórandi svona lengi og ekki leyfa henni bara að deyja með sæmd.

En vil samt vita eitt:

Hvernig er stemmningin fyrir því að ég bloggi samt áfram, bara ekki hér?

-Öspin
13. október 2006 klukkan 14:02
klámhundar
20 athugasemdir
11október

Tyllidaganöldur og Requiem for a Dream

Well, tyllidagarnir í MK liðnir.

Ég veit að fólk gerir alltaf sitt besta, og nefndin reyndi ábyggilega að gera eins og hún gat úr hlutunum, en mér fannst þeir slappir í ár. Síðustu 2 ár var hægt að velja um allskonar dót eins og keilu og skauta og go-kart og svona. Plús það að það var kósí stemmning með trúbador í orminum og fullt af námskeiðum og dóti. Í ár gat maður farið á fyrirlestra, fengið afslátt á 1 sýningu í bíó eða frosið í hel útí tjaldi. Þemað var líka rosa erfitt að vinna með...ekki nógu skýrt.

En allavega, þá mætti maður og fékk 3 stimpla hvorn daginn fyrir sig, fór á 3 fyrirlestra; Kynlíf, 'Börn' , og Blátt Áfram... fór í sund og fékk mér morgunmat... Mahagnað Karnivalþema þar.

Ballið fannst mér líka tæpt. Fyrirpartýið var haldið útí sveit og þar gat maður ekki drukkið eigið áfengi heldur fengið sér 1 bjór í boði hússins. Nei bíddu, ég borgaði víst 700 kall fyrir að vera lokuð inní húsi með ekkert nema 1 bjór í höndinni. Sem betur fer á ég góðhjartaða vini sem ekki vildu drekka sinn skammt :)
Síðan var haldið á ball þar sem ég þurfti að halda á minni massívu tösku allan tímann, klínast út í annara manna svita því það var svo troðfullt, og hlusta á e-ð sem varla getur talist tónlist.

Kannski er ég bara gömul og bitur, en ég vona samt að það verði betra næst.


Allright, yfir í allt aðra sálma, þá þarf ég að fara að horfa á Requiem for a Dream aftur.
Ég er að fara að gera verkefni úr henni fyrir sálfræði og ég er vægast sagt kvíðin. Fyrir fólk sem ekki hefur séð myndina: DO IT.

Ég persónulega horfði á hana ca. 14 ára gömul með Hildi og Ólöfu. Eftir áhorfið vorum við allar sammála að henda þyrfti öllum lélegum forvarnarverkefnum í grunnskólum og bara láta krakka í 8-10 bekk horfa á requiem for a dream kannski árlega og tíðni eiturlyfjaneyslu mundi snarlækka.

Ég man eftir því að vera hálfóglatt eftir að hafa séð myndina. Ég var virkilega niðurdregin svo jaðraði við þunglyndi næstu 2 daga. Þetta er áhrifamesta mynd sem ég hef nokkurn tíma séð, en ég lofaði sjálfri mér að ganga ekki í gegnum þetta helvíti aftur...en núna þarf ég víst að gera það. Vill einhver leggjast í þennan viðbjóð með mér? Plís...?? Ég mun ekki höndla þetta ein án þess að brotna niður held ég :p


PartíPartí
Aspen

11. október 2006 klukkan 19:55
klámhundar
Engin athugasemd
03október

Myndir frá laugardeginum

Hola, Ösp hér.

Það eru komnar myndir hérna til hliðar frá síðastliðnum laugardegi ;)
Njótið vel
03. október 2006 klukkan 05:36
klámhundar
10 athugasemdir
28september

Myndataka

Eftir nokkra daga kemur mynd af mér á netið, better yet, nemendafélagssíðuna...þar sem ég lít út eins og fílamaðurinn með eitthvað óþægilegt í rassinum á sér.

Vildi bara vara fólk við.

-Ösp

28. september 2006 klukkan 16:10
klámhundar
4 athugasemdir
27september

Littla prinsessan mín :D



Jæja þá er komin mynd af sætu frænku minniHlæjandi

ÞAð er búið að nefna hana og littla yndið á að heita KLARA Hissa

Þá heitir hún fullu nafni Klara Kristinsdóttir


 


Þarna er litla Klara heh og pabbinn alveg að rifna úr stoltiBrosandi




Núna verður að fara að kalla mig klöru lind svo það fari ekki allt í rugl í fjölskyldunni hehe


En já næsta laugardag stelpur var ég að pæla í að hafa hitting hjá mér. Getum gert eitthvað skemmtilegt farið í pottinn eða e-d plönum það bara seinna 



kveðja Klara LindGlottandi
Næsta >>

27. september 2006 klukkan 15:27
klámhundar
4 athugasemdir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Leikur dagsins

Könnun

Viđ hvađ mun sandra á starfa í framtíđinni?